Starfsemin
Icepharma er leiðandi fyrirtæki á íslenskum heilbrigðismarkaði. Fyrirtækið á djúpar rætur í íslensku samfélagi, enda má rekja sögu þess aftur til ársins 1919 þegar Stefán Thorarensen stofnaði Laugavegsapótek.
Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 100 manns við sölu og markaðssetningu,
sérfræðiráðgjöf og þjónustu. Starfsfólk Icepharma býr yfir yfirgripsmikilli reynslu
og þekkingu varðandi lyf og lækningar, hjúkrun, endurhæfingu, íþróttir og
hreyfingu og heilsueflandi neytendavörur. Mannauður fyrirtækisins er mikils
metinn og árangur þess undir okkar frábæra starfsfólki kominn.
Við leggjum áherslu á heilbrigðan rekstur, heiðarleika og ábyrgð í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur.