Teton One tekið í notkun á Landspítalanum

Grensásdeild sú fyrsta hér á landi með Teton One

Það hafa verið skemmtilegir og spennandi fyrstu dagar mars mánaðar hjá okkur í Icepharma Velferð.


Hún Laura frá Teton.ai kom hingað til lands til að aðstoða okkur við innleiðingu og þjálfun starfsfólks á Grensásdeild Landspítala í nýju gervigreindarkerfi sem nýlega var tekið í notkun á deildinni.


Í lok janúar setti tæknideild Icepharma upp búnaðinn, Teton One, á R2 á Grensásdeild. Með þessari innleiðingu er Grensásdeild fyrsta stofnunin á Íslandi til að taka slíka tækni í notkun en alls ekki sú síðasta, því nú þegar erum við byrjuð á uppsettningu lausnarinnar á HSU og undirbúningur fyrir íbúðarkjarna í Reykjarvík langt á veg komin.


Teton One byggir á nýjustu gervigreindartækni og er hannað til að veita starfsfólki betri yfirsýn yfir líðan og athafnir skjólstæðinga. Kerfið greinir sjálfkrafa ákveðnar aðstæður og getur þannig stutt við starfsfólk í daglegri umönnun. Rannsóknir sýna að með innleiðingu lausnarinnar hefur orðið að meðaltali 40% fækkun byltna og allt að 75% fækkun atvika, auk þess sem viðbragðstími getur styst um allt að 95%.

Lausnin byggir á ljósnæmis skynjurum og öflugri AI tölvu sem vinna saman að því að greina og túlka upplýsingar í rauntíma. Sérstök áhersla er lögð á persónuvernd, öll gögn eru greind innan hvers rýmis og í tækinu sjálfu.


Mikil tilhlökkun ríkir meðal starfsfólks að hefja fulla notkun kerfisins og þann 10. mars var aðgangur opnaður að fullu fyrir starfsfólk Grensásdeildar. Í tengslum við það fá allir starfsmenn deildarinnar einstaklingsmiðaða kennslu frá sérfræðingum Icepharma og fulltrúa Teton.ai.



Innleiðing þessarar tækni markar mikilvægt skref í þróun stafrænnar heilbrigðisþjónustu á Íslandi og styður við öruggari, skilvirkari og betri umönnun

Eftir Icepharma Velferð • 2. október 2026
Una fjarheilbrigðislausn reynist vel á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 11. september 2026
Icepharma Velferð á Nýsköpunardegi HSU 2026 
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 10. júní 2026
Þegar gott samstarf skilar sér alla leið
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 8. júní 2026
Innsýn í fjarvöktun og heimaspítala framtíðarinnar
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 1. júní 2026
Tímamót í heimahjúkrun á Íslandi
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 12. maí 2026
Icepharma sækir innblástur og styrkir samstarf á Vitalis
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 24. apríl 2026
Heimsóknir til birgja og hjúkrunarheimila efla þekkingu og samstarf
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 30. mars 2026
Ropox, þar sem þægindin eiga að gilda
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 18. mars 2026
Icepharma Velferð á Degi öldrunar og Vísindaþingi 2026: Nýsköpun, tengsl og framtíðarsýn
Eftir Stefanía Fanney Björgvinsdóttir • 16. janúar 2026
Upptaka frá ráðstefnu Icepharma Velfeferð Framtíðin er heima 13. janúar 2026
Fleiri fréttir